Jæja þá er krónprinsessan orðin 2ja, ég segi “krón” því ef eitthver fer með völdin hér þá er það þessi dama sem kemst upp með allt. Hún fékk ekki veislu en það gerist á næstu 2 vikum eða svo, svona um leið og það róast eitthvað aðeins hjá foreldrunum. Annars fékk hún smá veislu í leikskólanum sem hún mætti með Hello Kitty köku sem hún var mjög stolt af.
Að gefnu tilefni setti ég inn nokkrar myndir í albúmið.
Flokkað undir Ómar | 3 athugasemdir »
Skrifa athugasemd
Hér er smá videó sem ég tók áðan af litla grallaranum að leika sér með matinn sinn…
Videoið
Flokkað undir Utan flokks | 1 athugasemd »
Skrifa athugasemd
Ég ætla nú ekki að setja hér inn allt sem hefur gerst á næstum ári frá síðustu færslu….
Við Rakel erum að kafna í skólaverkefnum og er þá lífið þessa dagana frekar tilbreytinga lítið… Ég ætla samt að reyna vera duglegur að skrifa eitthvað hér inn ef það nennir eitthver að lesa…
Ég ef sett inn nokkrar myndir í nýja albúmið, þeir sem ekki muna var notendanafnið ‘gestur@landnam.dk’ og leyniorðið er það sama og það var, sem ekki verður gefið upp hér enda tæki það leyni úr leyniorðinu.
Ástæða þess að ég er loksins að drífa í því að setja eitthvað inn hér og þá aðalega myndir er til að þeir sem ekki hafa Facebook geta fylgst með okkur og þá kannski lesið eitthvað um okkur þars ég er ekki á Facebook og verð meiri andstæðingur hennar á hverjum degi… ef ég fæ mínu fram þá verða engar myndir frá okkur á Facebókinni hennar Rakel eftir daginn í dag…. ef ég gæti myndi ég fá hana til að loka reikninginum en ég held að ég nenni ekki að eyða orkunni í jafn vonlausa baráttu og það yrði….
Læt heyra í mér fljótlega aftur… ef ég hef ekki misst alla áheyrnd sökum skoðunnar á bókinni hans Mark Zuckerberg…..
Flokkað undir Ómar | Engin athugasemd »
Skrifa athugasemd
Flokkað undir Ómar | Engin athugasemd »
Skrifa athugasemd
tímin er svo fljótur að líða þetta er bara grín…. geggjaðar myndir bara fyndið að sjá hana borða á hjólinu hahaha algjör krútta
gleymdi að segja KLIKKAÐSLEGA flott kaka!!!!
Jæja gott fólk, er ekki fyrir svolítið löööngu síðan komin tími á nýjar myndir????
Við erum að tala um Maí, Júní og Júlí!
Ég bíð spennt